Selections from the Writings of the Báb

Icelandic · Báb

BB00490 BB00490

Add range:

Ínafni Guðs, Drottins yfirþyrmandi tignar, hins alknýjandi. Helgaður sé Drottinn sem hefur í hendi sér uppsprettu yfirráða. Hann skapar hvaðeina sem honum þóknast með boði sínu „Ver“, og það er. Hans hefur allt vald verið fram til þessa og hans verður það héðan í frá. Hann gerir hvern sem honum þóknast sigursælan með valdi skipunar sinnar. Hann er í sannleika hinn voldugi, hinn almáttugi. Honum tilheyrir öll dýrð og tign í ríkjum opinberunar og sköpunar og hvarvetna þar á milli. Hann er sannlega hinn máttugi og aldýrlegi. Að eilífu hefur hann verið uppspretta ósigrandi styrks og svo mun verða um eilífð. Hann er að sönnu Drottinn máttar og valds. Öll ríki himins og jarðar og allt þar á milli tilheyrir Guði og vald hans er öllu æðra. Honum tilheyra allir fjársjóðir himins og jarðar og alls þar á milli og vernd hans yfirskyggir allt sem er. Hann er skapari himnanna og jarðarinnar og alls sem þar er á milli og sannlega er hann vitni að öllu sem er. Hann er Drottinn reikningsskilanna öllum sem dvelja á himnum og jörðu og hvarvetna þar á milli og sannlega er Guð fljótur til reikningsskila. Hann setur mælikvarðann sem ákveðinn er öllum á himnum og jörðu og öllu sem er þar á milli. Vissulega er hann hinn æðsti verndari. Í hendi sér hefur hann lykla himins og jarðar og alls þar á milli. Hann úthlutar gjöfum sínum að eigin vild með valdi skipunar sinnar. Náð hans umlykur í sannleika allt sem er, og hann er sá sem allt þekkir. Seg: Guð nægir mér; hann er sá sem hefur í hendi sér ríki alls sem er. Hann verndar hvern þann þjón sinn sem honum þóknast með valdi himneskra og jarðneskra herskara sinna og með öllu sem er þar á milli. Guð vakir að sönnu yfir öllu sem er. Ómælanlega upphafinn ert þú, ó Drottinn! Vernda okkur gegn því sem er fyrir framan okkur og aftan, yfir höfðum okkar, til hægri og vinstri handar, undir fótum okkar og gegn öllu öðru sem að okkur beinist. Vissulega er vernd þín óskeikul öllu sem er.*

  • Upprunalegt handrit þessarar bænar fyrir vernd er skrifað með eigin hönd Bábsins í formi fimmodda stjörnu.

BB00553 BB00553

Add range:
Lofað sé nafn Þitt, ó Drottinn Guð okkar! Þú þekkir í sannleika hið óséða. Ákvarða okkur þau gæði, sem alltumlykjandi þekking Þín getur út­hlutað. Þú ert yfirbjóðandi Drottinn, hinn al­máttugi og ástkærasti. Allt lof sé Þér, ó Drottinn! Við leitum náðar Þinnar á hinum tiltekna degi og setjum allt okkar traust á Þig sem ert Drottinn okkar. Dýrlegur ert Þú, ó Guð! Gef okkur það sem gott er og sæmandi, svo að við megum hafna öllu nema Þér. Vissulega ert Þú Drottinn allra veraldanna. Ó Guð! Umbuna þeim sem þolugir þreyja á dögum Þínum og styrk hjörtu þeirra til að feta öruggum skrefum stigu sannleikans. Gef því, ó Guð, þær góðu gjafir sem gera þeim fært að ganga inn í unaðssæla paradís Þína. Upphafinn ert Þú, ó Drottinn Guð. Lát himneska blessun Þína stíga niður yfir heimili þeirra, sem hafa trúað á Þig. Vissulega stendur enginn Þér framar í útdeilingu himneskra blessana. Send frá Þér, ó Guð, þá her­skara, sem gera munu trúfasta þjóna Þína sigur­sæla. Þú mótar sköpunina með mætti ákvörðunar Þinnar að vild Þinni. Þú ert í sannleika yfirbjóð­andinn, skaparinn, hinn alvitri. Seg: Guð er að sönnu skapari allra hluta. Hann gefur ríkulega næringu þeim, sem Hann vill. Hann er skaparinn, uppspretta allrar verundar, mót­and­inn, hinn almáttugi, smiðurinn, hinn alvitri. Hann ber hin ágætustu nöfn í öllum himnunum og á jörð­unni og hvarvetna þar á milli. Allir hlýða boðum Hans, allir íbúar jarðar og himins vegsama Hann og lofa og til Hans munu allir hverfa aftur.

BB00554 BB00554

Add range:
Lof sé þér, ó Drottinn, besti ástvinur minn! Ger mig staðfastan í málstað þínum og gef að ég megi teljast til þeirra sem ekki hafa rofið sáttmála þinn né fylgt hjáguðum sinna eigin fánýtu ímyndana. Ger mér því kleift að taka sæti sannleikans í návist þinni, gef mér tákn um miskunn þína og lát mig ganga í flokk þeirra þjóna þinna sem ekki verða slegnir ótta og enginn fær bakað hryggð. Gef mig ekki á vald sjálfs mín, ó Drottinn minn, og meina mér ekki um þekkingu á honum sem opinberar þitt eigið sjálf og tel mig ekki til þeirra sem hafa snúið frá heilagri návist þinni. Tel mig, ó Guð minn, með þeim sem njóta þeirra forréttinda að festa sjónir á fegurð þinni og hafa af því slíkt yndi að þeir myndu ekki skipta á einu andartaki þess unaðar fyrir ríki himins og jarðar né gjörvallt sköpunarverkið. Sjá aumur á mér, ó Drottinn, á þessum dögum þegar þjóðir jarðar þinnar hafa ratað í hörmulega villu. Veit mér því, ó Guð minn, það sem er gott og sæmandi að þínu mati. Þú ert vissulega hinn alvoldugi og náðugi, hinn örláti, sá sem ætíð fyrirgefur. Gef, ó Drottinn minn, að ég megi ekki teljast til þeirra sem sviftir eru sjón, heyrn og máli og hafa skynlaus hjörtu. Frelsa mig, ó Drottinn, frá eldi fáfræði og eigingjarnrar ástríðu, leyf mér að ganga inn til sviða þinnar yfirskilvitlegu náðar og send það niður yfir mig sem þú hefur ákvarðað þínum útvöldu. Þú ert þess megnugur að gera það sem þér líst. Vissulega ert þú hjálpin í nauðum, hinn sjálfumnógi.

BB00583 BB00583

Add range:
Dýrð sé Þér, ó Drottinn Guð minn! Ég bið Þig að fyrirgefa mér og þeim sem styðja trú Þína. Vissulega ert Þú allsráðandi Drottinn, fyrirgef­andinn, hinn örlátasti. Ó Guð minn! Gef að þeir þjónar Þínir sem eru sviptir þekkingu á Þér fái inngöngu í málstað Þinn, því þegar þeir eitt sinn hafa heyrt um Þig bera þeir vitni sannleika dóms­dags og andmæla ekki opinberunum örlætis Þíns. Sendu niður yfir þá tákn náðar Þinnar og gef þeim, hvar sem þeir búa, ríkulegan skerf af því sem Þú hefur ákvarðað hinum guðræknu meðal þjóna Þinna. Þú ert í sannleika hinn æðsti stjórnandi, hinn gæskuríkasti, sá sem allt gefur. Ó Guð minn! Lát hylli Þína og blessanir streyma yfir heimili þeirra sem tekið hafa trú Þína sem tákn um náð Þína og til merkis um ástúð frá návist Þinni. Vissulega ert Þú fremstur þeirra sem fyrir­gefa. Veitist einhverjum ekki náð Þín, hvernig gæti hann talist meðal fylgjenda trúar Þinnar á degi Þínum? Blessaðu mig, ó Guð minn, og þá sem trúa á tákn Þín á hinum tilskipaða degi og þá sem ala ást mína í brjósti sínu – ástina sem Þú gefur þeim. Vissulega ert Þú Drottinn réttlætis, hinn upp­hafnasti.

BB00593 BB00593

Add range:
Ó Guð, Drottinn okkar! Vernda okkur sakir náð­ar Þinnar gegn öllu, sem kann að vekja andúð Þína, og veit okkur það, sem sæmir Þér vel. Gef okkur enn ríflegar af örlæti Þínu og blessa okkur. Fyrirgef okkur það sem við höfum gert, hreinsa okkur af syndum okkar og veit okkur af­lausn með mildri fyrirgefningu Þinni. Sannlega ert Þú hinn háleitasti, hinn sjálfumnógi. Ástúðleg forsjón Þín hefur umlukið allt sem skapað er á himnum og jörðu og fyrirgefning Þín hefur yfirstigið alla sköpunina. Þitt er fullveldið og í höndum Þínum eru ríki sköpunar og opinberunar. Í hægri hendi Þinni heldur Þú öllu sem skapað er og í greip Þinni eru deildir verðir fyrirgefningar. Þú fyrirgefur þeim af þjónum Þínum, sem Þér þóknast. Sannlega ert Þú sá, sem ætíð fyrirgefur, sá sem allt elskar. Alls ekkert getur umflúið þekkingu Þína og ekkert er Þér dulið. Ó Guð, Drottinn okkar! Vernda okkur með mætti afls Þíns, ger okkur kleift að ganga inn í undur­samlegt, svellandi úthaf Þitt og veit okkur það, sem sæmir Þér vel. Þú ert æðsti stjórnandinn, gerandinn máttugi, hinn upphafni, sá sem allt elskar.

BB00617 BB00617

Add range:
Ég bið Þig að fyrirgefa mér, ó Drottinn minn, alla minningu nema minninguna um Þig, alla lofgjörð nema lofgjörð til Þín, allan unað nema unað­inn af návist Þinni, alla ánægju nema ánægj­una af samneyti við Þig, allan fögnuð nema fögnuð ástar Þinnar og velþóknunar og allt sem mér til­heyrir en ekki tilheyrir Þér, ó Þú sem ert Drottinn drottna, sá sem opnar dyrnar og gerir leiðirnar greiðfærar.

BB00621 BB00621

Add range:
Vegsamaður og dýrlegur sért þú, ó Guð! Gef að sá dagur nálgist óðfluga, er við göngum í heilaga návist þína. Gleð hjörtu okkar með mætti ástar þinnar og velþóknunar og ger okkur staðfasta, svo að við gefum okkur fúslega undir þinn vilja og þína ákvörðun. Vissulega umlykur þekking þín allt, sem þú hefur skapað og munt skapa, og himneskur máttur þinn er ofar öllu, sem þú hefur kallað og munt kalla til lífs. Engan ber að tigna nema þig, engan ber að þrá nema þig, engan ber að tilbiðja nema þig og ekkert ber að elska nema velþóknun þína. Vissulega ert þú hinn æðsti stjórnandi, hinn fullvalda sannleikur, hjálpin í nauðum, hinn sjálfumnógi.

BB00623 BB00623

Add range:
Er nokkur sá er firrir erfiðleikum nema Guð? Seg: Lof sé Guði, Hann er Guð! Allir eru þjónar Hans og allir lúta boðum Hans.

BB00630 BB00630

Add range:
Ó Drottinn! Þú ert sá, sem fjarlægir alla angist og flæmir á braut sérhverja þrengingu. Þú ert sá, sem gerir útlæga hverja sorg og leysir sérhvern bandingja, endurlausnari allra sálna. Ó Drottinn! Veit Þú lausn Þína sakir miskunnar Þinnar og tel mig með þeim þjónum Þínum, sem hlotnast hefur frelsun.